Ákvað að blogga aftur vegna fjölda
áskorana. Hélt að síminn ætlaði ekki að hætta að
hringja
Ætti þá a.m.k. að fá svefnfrið í nótt
eftir þennan pistil
Er ekki búinn að hafa mikinn tíma undanfarið enda
allur minn frítími búin að fara í að knúsa og kela við Mörtu og
gríslingana mína. Ég ætlaði ekki að þekkja Daníel
aftur. Hann er búin að stækka ótrúlega á einum mánuði og
orðinn alveg ljóshærður (sennilega eftir alla sólina í Póllandi,
nema Marta hafi hitt einhvern Svía á sínum tíma því ekki er þetta
minn háralitur svo mikið er víst). Svo er hann farinn að kjafta
heil ósköp og ef hann kann ekki orðin þá kemur hann bara
með þau á einhverju tungumáli sem ég skil allavega
ekki (hlýtur þá að vera þýska hehehe).
Alveg frábært að vera búin að fá þau heim og aftur líf og fjör
í kotinu. Núna er meira segja matur í ískápnum, ég var satt
best að segja ekki mjög duglegur kaupa inn í ískápinn og
elda fyrir mig einan einhverjar steikur. Ég er s.s. ekkert illa
haldinn eftir útlegðina og hafið ekki áhyggjur, ég er enþá sæmilega
frambyggður
Var hinsvegar með allskonar
tilraunastarfsemi í gangi á meðan þau voru úti. Leitaðist ég
við að svara ýmsum spurningum. T.d.
Tilraun nr 001.
Hversu grænt getur brauð orðið af myglu og
hvað tekur það langan tíma?
Svar: Mjög grænt og það tekur ca. 10
daga
Tilraun nr 002
Er möguleiki að láta vaxa hálfgert tré ofan
á tómötum inn í ískáp?
Svar: Já! Ef þeir gleymast út í horni í
ískápnum og ekki er vitað um þá fyrr en 2 dögum áður en frúin
kemur heim.
Tilraun nr 003
Hversu lengi tekur það Svein Bjarnason að drepa
1/3 af öllum fiskum Gabríelu?
Svar: Tók nokkuð snökkt af (4 daga) en rannsókn á
þessu undarlega máli stendur enn yfir. Er enn að reyna
telja Gabríelu trú um að þeir hafi dáið úr mjög
sjaldgæfum hjartasjúkdómi.
Tilraun 004
Hversu lengi lifa blóm án vatns í mikilli
sól og hita inn í stofu?
Svar: Ótrúleg þrjóska í þessum kvikindum. Ég
náði ekki alveg að drepa þau, en að vísu voru þau orðin frekar
niðurlút. Marta kom heim á síðustu stundu og náði að bjarga
því sem bjargað var.
Tilraun 005
Hversu marga bjóra er hægt að setja inn í
ískápinn?
Svar: Mission failed! Rannsókn ekki marktæk þar
sem bjórar hurfu hratt úr skápnum á heitum sumardögum.
Af öðru leiti stóð ég mig bara nokkuð vel sem
einsetukarl
segi þetta gott .
Bæjó Sveinurinn
p.s. séstaklega gert fyrir Sævar
(misiu)